Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Regnbogaráðstefna Hinsegin daga 2026

6. ágúst @ 09:30 - 16:00

Pride Centre – Iðnó

Regnbogaráðstefna Hinsegin daga verður haldin í fimmta sinn á Hinsegin dögum 2026.

ÖBÍ réttindasamtök taka þátt í Regnabogaráðstefnu Hinsegindaga 6. ágúst klukkan 13:00,  í Iðnó með erindið Í mörgum kössum – Sögur um fötlun, hinseginleikann og mannréttindi.

Hinsegin fatlað fólk er alls konar og tilheyrir fjölbreyttum hinsegin- og fötlunarhópum sem og samfélaginu í heild sinni. En hvernig er að tilheyra mörgum kössum í félagslegu flokkunarkerfi og er margþætt mismunun algeng innan ólíkra hópa á Íslandi?

Til að skyggnast inn í þennan margbreytileika, sem endurspeglast í litum hinsegin pride fánans og fötlunar pride fánans, munum við heyra reynslusögur fólks úr ólíkum áttum sem á það sameiginlegt að tilheyra fleiri en einum lit og ræða áhrif þess á líf þeirra. Regnbogaráðstefnan hefst klukkan 9:30 og líkur klukkan 16:00 og öll erindi verða rittúlkuð.

Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunar má finna í gegnum hlekkina hér.

Regnbogaráðstefnan er haldin í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Upplýsingar

  • Dagsetning: 6. ágúst
  • Tími:
    09:30 - 16:00
  • Viðburðir Flokkur: