Fræðsluröð ÖBÍ: Rýnt í fjárlagafrumvarpið

Það er orðið að venju að hefja fræðsluröð ÖBÍ að hausti með því að kryfja fjárlagafrumvarpið. Mikil ánægja hefur verið með námskeiðið undanfarin ár og ljóst að það hefur reynst mjög gagnlegt þeim sem hafa sótt. Á námskeiðinu mun Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi fjármálaráðherra kafa í frumvarpið, leiðbeina um umsagnagerð og hagsmunagæslu.
Námskeiðið verður haldið hér í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42, mánudaginn 5. október kl. 14-16:00 (tvö til fjögur). Vinsamlega skráið þátttöku í gegn um eyðublað HÉR ( https://www.obi.is/skraning-fraedslurod-obi-rynt-i-fjarlagafrumvarpid/ )
Leiðbeinandi: Oddný G. Harðardóttir hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum á ferli sínum. Hún sat á Alþingi frá 2009-2024, gegndi embætti fjármálaráðherra 2011-12, iðnaðarráðherra 2012 og fjármála-og efnahagsráðherra 2012. Þá var hún 1. varaforseti Alþingis 2021-2024, formaður þingsflokks Samfylkingarinnar í nokkur ár, auk þess sem hún var um tíma formaður fjárlaganefndar.




