Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Furðufuglar á hugarflugi – List án landamæra

10. október @ 13:00 - 15:00

Listvinnzlan opnar samsýninguna Furðufuglar á hugarflugi í Gerðubergi laugardaginn 10. október kl. 13:00–15:00.

Listvinnzlan er listhópur Listar án landamæra 2026.

Sýningarstjórar eru Elín Sigríður María Ólafsdóttir og Kolbeinn Jón Magnússon úr Listvinnzlunni og hafa þau vandlega valið verk eftir fjölbreyttan hóp listafólks, bæði úr Listvinnzlunni og víðar að.
Þetta er í fyrsta sinn sem fatlað listafólk sér alfarið um sýningarstjórn á sýningu Listar án landamæra.

Listvinnzlan er fjölbreyttur hópur listamanneskja sem stundar faglega listsköpun. Þar vinnur listafólk að eigin verkum með ólíka miðla og efnivið, meðal annars teikningu, málverk, skúlptúr, myndasögur, kvikmyndalist og gjörninga. Listvinnzlan var stofnuð árið 2022 af Margréti M. Norðdahl og hefur á fáum árum vaxið ört og orðið mikilvægur vettvangur innan íslensks lista- og menningarlífs.

Öll hjartanlega velkomin!

Aðgengi í Gerðubergi er grænt – engir þröskuldar, tvöfaldar rennihurðir við inngang, lyfta á milli hæða, aðgengilegt salerni á neðri hæð og merkt bílastæði fyrir framan húsið.

Sýnendur eru:

  • Atli Már Indriðason
  • Benedikta Rostan
  • E.S.M.Ó. Elín S. M. Ólafsdóttir
  • Frida Adriana Martins
  • Garðar Reynisson
  • Gígja Garðarsdóttir
  • Guðmundur Stefán Guðmundsson
  • Gunnar Már Pálsson
  • Harpa Rut
  • Helga Matthildur Viðarsdóttir
  • Ísak Óli Sævarsson
  • Kolbeinn Jón Magnússon
  • Lára Lilja Gunnarsdóttir
  • Lilja Dögg Birgisdóttir
  • Óskar Theódórsson
  • Sigrún Huld Hrafnsdóttir
  • Þorvaldur Arnar Guðmundsson
  • Þórir Gunnarsson – Listapúkinn

Upplýsingar