Ljósaganga UN Women á Íslandi 2026 – Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi
25. nóvember @ 17:00 - 18:00
Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00, á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi.
Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir munu leiða gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur.
Hvar og hvenær?
- Mæting við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli kl. 17:00
- Gengið verður suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg
- Göngunni lýkur á Bríetartorgi með stuttri samverustund og kórsöng.
Áhersla 16 daga átaksins í ár er á hatursummælum og stafrænu einelti og áhrifum þess á þolendur.
Hver er munurinn á tjáningu og hatursfullum, eða meiðandi, ummælum á internetinu? Má kalla stjórnmálakonu „heimska álft“? Má kalla hinsegin einstakling „barnaníðing“? Hvenær breytist „málfrelsi“ í refsivert athæfi eða einelti?
Ítrekuð hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum í garð fólks, og þá einkum kvenna í opinberum stöðum, hinsegin fólks, innflytjenda og annarra jaðarsettra hópa, hafa alvarlegar afleiðingar fyrir þolendur. Slíkt hefur djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þeirra til þátttöku í samfélaginu.
Þegar ákveðnir hópar fólks veigra sér við að taka þátt í opinberri umræðu vegna hatursfullra ummæla, hætta að tjá skoðanir sínar og treysta sér jafnvel ekki til að sækjast eftir opinberum störfum er hættulega vegið að grunnstoðum lýðræðis.
Við hvetjum öll til að mæta og taka afstöðu gegn stafrænu ofbeldi.




