Loading Viðburðir

« All Viðburðir

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi – UN Women á Íslandi

25. nóvember @ 08:00 - 10. desember @ 23:30

16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, og lýkur 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadeginum. Átakinu er ætlað að vekja athygli á einu alvarlegasta mannréttindabroti samtímans, ofbeldi gegn konum og stúlkum. Ein af hverjum þremur konum í heiminum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni.

Alþjóðleg yfirskrift átaksins árið 2026 er „UNiTE to End Violence Against Women and Girls: Ensure justice, protect survivors, end impunity“  sem þýða mætti sem: „Tryggjum réttlæti, verndum þolendur og stöðvum refsileysi.“

Í tengslum við hið árlega 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi mun UN Women á Íslandi beina kastljósinu að stafrænum hatursummælum og -einelti og áhrifum þess á þolendur og samfélagið í heild. Yfirskrift átaks UN Women á Íslandi verður „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“ og byggir herferðarefnið á raunverulegum ummælum sem hafa verið látin falla opinberlega og beinast ýmist að einstaklingum eða hópum fólks.

Appelsínugulur litur táknar framtíð án ofbeldis

Árleg ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17:00 og markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Þá verður fjöldi bygginga og stofnana um allt land lýstur upp í appelsínugulum lit í tilefni átaksins, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

Meðal þeirra bygginga sem lýstar verða upp í tilefni átaksins eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, Tækniskólinn í Reykjavík, Hof menningarsetur, Harpa tónlistarhús, Listasafn Akureyrar, Þjóðminjasafnið, Ásmundarsalur, Gróttuviti, Hallgrímskirkja, Háteigskirkja, Kópavogskirkja, Mannréttindahúsið, Ráðhús Reykjavíkur og Stjórnarráðsbyggingin. Eins verður bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand lýst upp í tilefni átaksins.

Ógn við lýðræði

Ítrekuð hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum í garð fólks hafa djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þess til þátttöku í samfélaginu‏. Öll getum við orðið  fyrir slíkum ummælum og árásum, en rannsóknir sýna að ákveðnir hópar fólks eru líklegri til að verða fyrir slíku ofbeldi en aðrir.

Konur sem gegna opinberum störfum, hinsegin fólk, innflytjendur, konur í fjölmiðlum, ungt fólk og fatlaðar konur eru margfalt líklegri til að vera beittar slíku ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur raunveruleg og djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu‏. Mikilvægt er að tryggja stuðning og þjónustu til þolenda stafrænna hatursummæla og -eineltis því stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi.

Upplýsingar