AðgengiFrétt

Ný lyfta og bætt aðgengi á Hallveigarstöðum

By 20. júní 2026júlí 2nd, 2026No Comments

Á Kvenréttindadaginn, 19. júní, var ný lyfta á Hallveigarstöðum formlega vígð. Uppsetning lyftunnar er mikilvægt skref í átt að bættu aðgengi og markar tímamót fyrir húsið.

Fyrstu ferðina með lyftunni fór Sunna Elvíra Þorkelsdóttir sem jafnframt klippti á borðann við vígslu hennar. Athöfnin einkenndist af mikilli gleði enda markar framkvæmdin tímamót fyrir eitt af mikilvægustu samkomuhúsum kvennahreyfingarinnar.

Hallveigarstaðir voru vígðir á Kvenréttindadaginn árið 1967 og hafa gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi í áratugi. Með þessari framkvæmd hefur húsið tekið mikilvægt skref í átt að betra aðgengi og er betur í stakk búið til að taka á móti fjölbreyttum hópi gesta og notenda.

Arkitekt breytinganna var Albína Hulda Sigvaldadóttir Thordarson. Það er skemmtileg tilviljun að faðir hennar, Sigvaldi Thordarson, teiknaði Hallveigarstaði á sínum tíma. Dagbjartur Helgi Guðmundsson aðstoðaði hússtjórn við verkstjórn framkvæmdarinnar og á miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag. ETH verktakar önnuðust framkvæmdina og Íslandslyftur sáu um uppsetningu lyftunnar.

ÖBÍ réttindasamtök óska Hallveigarstöðum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.