Skip to main content
AlmannatryggingarUmsögn

Almannatryggingar (kostnaður við greiðslur). 55. mál

By 22. mars 2022september 1st, 2022No Comments

Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík

Reykjavík, 22. mars 2022

Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (kostnaður við framkvæmd greiðslna) þingskjal 55 – 55 mál.

ÖBÍ lýsir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og felst í að Tryggingastofnun skuli greiða allan kostnað vegna greiðslna opinberra réttinda svo að girt sé fyrir mismunun á grund-velli búsetu að þessu leyti. Þessi kostnaður getur verið umtalsverður fyrir lífeyrisþega og þá sérstaklega sem hlutfall af þeirra tekjum.

Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eru greiddar úr landi til lífeyris-þega sem flytja lögheimili sitt til annars aðildarríkis EES-samningsins. Hins vegar eru bætur og greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007 ekki greiddar úr landi, sem hefur í för með sér að greiðslur til þeirra frá TR lækka við að flytja lögheimili úr landi.

Ekkert um okkur án okkar.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir, félagsráðgjafi ÖBÍ