FréttSjúkratryggingar

Ertu á leið í ferðalag utan EES svæðisins – Kannið ferðatryggingar!

Frá og með 1. ágúst 2026 tekur gildi breyting á lögum um sjúkratryggingar sem felur í sér að kostnaður vegna veikinda eða slysa í ferðum til landa utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verður ekki lengur greiddur af sjúkratryggingum.

ÖBÍ vill vekja athygli á breytingunni og hvetur fólk sem hyggst ferðast utan EES til að kynna sér vel hvaða vernd ferðatryggingar veita og hvort þörf sé á viðbótartryggingum.

Kostnaður vegna læknisþjónustu, sjúkrahúsdvalar eða heimflutnings getur orðið umtalsverður og því mikilvægt að kanna þessi mál vel áður en lagt er af stað.

Breytingin er hluti af nýjum lögum um sjúkratryggingar sem Alþingi samþykkti í júní.