Hvað er samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks?
Árið 2006 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar samninginn.
Sameinuðu þjóðirnar sáu að fatlað fólk hafði ekki sömu réttindi og aðrir.
Fatlað fólk á að hafa sömu réttindi og aðrir.
Samningurinn fjallar um hvað ríki eiga að gera.
Samningurinn fjallar um að fatlað fólk hafi sömu réttindi og aðrir.
Samningurinn fjallar ekki um sérstök réttindi fyrir fatlað fólk.
Ísland skrifaði undir samninginn árið 2007.
Árið 2025 fullgilti Ísland samninginn.
Að fullgilda samninginn þýðir að:
- Fatlað fólk á Íslandi á að hafa réttindin í samningnum.
- Lög á Íslandi eiga að vera eins og samningurinn segir.
- Ríkið á að gera það sem stendur í samningnum.
- Sveitarfélög eiga að gera það sem stendur í samningnum.
Sveitarfélög eru til dæmis:
- Reykjavík
- Akureyri
- Egilsstaðir
- Ísafjörður.
Svona er samningurinn
Í samningnum er formáli.
Formálinn fjallar um réttindin sem Sameinuðu þjóðirnar eru búnar að samþykkja.
Samningurinn skiptist í 50 kafla.
Í opinberu útgáfunni kallast hver kafli: grein.
Flestir kaflarnir fjalla um réttindi fatlaðs fólks á ákveðnu sviði.
- Kaflar 1 til 3 fjalla um markmið samningsins.
- Kaflar 4 til 30 fjalla um réttindi fatlaðs fólks
- Kaflar 4 til 30 fjalla líka um hvað lönd þurfa að gera til að passa réttindi fatlaðs fólks.
- Kaflar 31 til 50 fjalla um hvernig löndin eiga að vinna saman.
- Kaflar 31 til 50 fjalla líka um hvernig Sameinuðu þjóðirnar passa að löndin fari eftir samningnum.
Sameinuðu þjóðirnar hafa gert bókun við samninginn.
Bókunin er viðbót við samninginn.
Bókunin fjallar um réttinn til að fara með mál fyrir nefnd um réttindi fatlaðs fólks.
Löndin ráða hvort þau samþykkja bókunina.
Ísland hefur samþykkt bókunina.
Samningurinn skiptist í 18 kafla.
Í opinberu útgáfunni kallast hver kafli: grein.
Kafli 1 – Að fara með mál til nefndarinnar
Nefnd um réttindi fatlaðs fólks tekur á móti málum.
Málin snúast um réttindi fatlaðs fólks.
Nefndin má skoða mál.
Fólk getur farið með mál til nefndarinnar þegar:
- fólki finnst land koma illa fram við sig.
- land fer ekki eftir Samningi Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks.
Fyrst þarf landið að samþykkja bókunina.
Hópar geta líka farið með mál til nefndarinnar.
Kafli 2 – Nefndin þarf ekki að rannsaka öll mál
Nefndin skoðar ekki öll mál.
Nefndin skoðar ekki mál þegar:
- sá sem kemur með málið segir ekki nafnið sitt.
- málið fjallar ekki um samninginn.
- nefndin hefur skoðað svipað mál.
- einhver annar hefur skoðað svipað mál.
- landið á sjálft eftir að skoða málið.
Þetta gildir ekki þegar:
- landið er mjög lengi að rannsaka málið.
- landið er ekki líklegt til að laga hlutina.
- málið er líklega ekki
- málið snýst um eitthvað sem gerðist áður en landið skrifaði undir bókunina.
Kafli 3 – Nefndin lætur landið vita
Fær nefndin mál til sín?
Þá lætur nefndin landið sem málið snýst um vita.
Landið hefur 6 mánuði til að svara.
Landið á að útskýra málið.
Landið á að segja hvað landið hefur gert.
Kafli 4 – Að skoða mál fljótt
Nefndin getur sagt landi að skoða málið fljótt.
Það er svo landið skaði ekki fólk.
Til dæmis á meðan málið er rannsakað.
Kafli 5 – Enginn annar á fundum
Nefndin skoðar mál á fundum.
Bara nefndin má vera á fundunum.
Er nefndin með hugmyndir um hvað land á að gera?
Þá sendir nefndin landinu hugmyndirnar.
Kafli 6 – Lönd eiga að vinna með nefndinni
Er nefndin viss um að land fari ekki eftir samningnum?
Þá býður nefndin landinu að vinna með sér.
Nefndin og landið vinna rannsókn saman.
Landið getur gert athugasemdir við málið.
Þá getur landið útskýrt málið.
Nefndin getur valið fólk úr nefndinni til að rannsaka málið betur.
Þetta fólk rannsakar málið betur.
Svo segir þetta fólk nefndinni frá málinu.
Þetta fólk getur til dæmis heimsótt landið sem málið fjallar um.
Er nefndin búin að rannsaka málið betur?
Þá sendir nefndin landinu skýrslu.
Í skýrslunni stendur:
- hvað nefndin veit um málið.
- hvað nefndin vill að landið geri.
Landið hefur 6 mánuði til að svara skýrslunni.
Landið og nefndin eiga að vinna vel saman.
Kafli 7 – Landið segir frá
Er rannsóknin búin?
Þá segir landið frá hvað landið er búið að gera.
Kafli 8 – Land má segja nei
Löndin sem hafa skrifað undir bókunina
mega segja nei við köflum 6 og 7.
Þá vinnur landið ekki með nefndinni.
Kafli 9 – Hver geymir bókunina?
Sameinuðu þjóðirnar geyma bókunina sem löndin skrifa undir.
Kafli 10 – Að skrifa undir
Öll lönd geta skrifað undir bókunina.
Lönsin skrifa undir bókunina hjá Sameinuðu þjóðunum.
Sameinuðu þjóðirnar geyma bókunina í New York.
New York er borg í Bandaríkjunum
Kafli 11 – Ríkisstjórnir samþykkja
Skrifar land undir bókunina?
Þá þarf ríkisstjórn landsins að samþykkja bókunina.
Sambönd landa geta líka skrifað undir bókunina.
Til dæmis: Evrópu·sambandið.
Kafli 12 – Samvinna landa
Lönd þurfa að ákveða hvað sambönd bera mikla ábyrgð.
Til dæmis í Evrópu·sambandinu.
Bera löndin mesta ábyrgð?
Ber Evrópu·sambandið mesta ábyrgð?
Samböndin láta nefndina vita.
Sambönd mega kjósa þegar löndin hittast til að tala um bókunina.
Þá fær sambandið jafn mörg atkvæði og löndin eru í sambandinu.
Þá þurfa öll löndin í sambandinu að vera sammála.
Eru löndin í sambandinu ósammála?
Þá kjósa löndin sjálf.
Kafli 13 – Hvenær byrjar bókunin að gilda?
Bókunin byrjar að gilda 30 dögum eftir að land skrifar undir.
Þá getur fólkið í landinu sent nefndinni mál.
Kafli 14 – Fyrirvarar
Lönd geta gert fyrirvara við bókunina.
Fyrirvari þýðir:
Landið samþykkir ekki allt sem stendur í bókuninni.
Samt mega lönd ekki gera fyrirvara sem eru á móti því sem bókunin á að gera.
Til dæmis að fólk megi fara með mál fyrir nefndina.
Lönd mega alltaf hætta með fyrirvara.
Kafli 15 – Að breyta bókuninni
Land getur komið með hugmynd um að breyta bókuninni.
Sameinuðu þjóðirnar taka á móti hugmyndinni.
Öll hin löndin fá hugmyndina senda.
Löndin hugsa málið.
Löndin tala saman.
Vill þriðjungur landanna halda fund um hugmyndina?
Þá halda Sameinuðu þjóðirnar fund um hugmyndina.
Þriðjungur þýðir 1 af hverjum 3.
Á fundinum er kosið um hugmyndina.
Segja 2 af hverjum 3 löndum já við hugmyndinni?
Þá breytist bókunin.
Kafli 16 – Að hætta við
Land má skipta um skoðun.
Þá sendir landið Sameinuðu þjóðunum bréf.
Í bréfinu stendur að landið vilji hætta að vera með í bókuninni.
Kafli 17 – aðgengi
Bókunin á að vera aðgengileg.
Textinn á líka að vera aðgengilegur.
Til dæmis:
- á ólíkum tungumálum
- á auðlesnu máli.
Kafli 18 – Tungumál
Bókunin er til í mörgum útgáfum.
Bókunin er til á mörgum tungumálum.
Þannig er bókunin aðgengileg.
Það er flókið að hafa margar útgáfur af sömu bókuninni.
Þess vegna gilda bara nokkrar útgáfur af bókuninni.
Útgáfurnar sem gilda eru á:
- Arabísku
- Ensku
- Frönsku
- Kínversku
- Rússnesku
- Spænsku.
Þessi útgáfa er á auðlesnu máli.
Þessi útgáfa er bara til að útskýra bókunina.