Skip to main content
Málefni barnaUmsögn

Breyting á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)

By 8. mars 2023mars 9th, 2023No Comments

Umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.).

ÖBÍ – réttindasamtök (ÖBÍ) styðja frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna þar sem frumvarpið felur í sér breytingar til að styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna og til að tryggja betra samræmi í lögum við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Málefni fatlaðra barna jafnt og ófatlaðra barna eru mikilvæg og því fagnar ÖBÍ allri markvissri vinnu sem stuðlar að velferð og velsæld allra barna.

Ekkert um okkur án okkar!

Virðingarfyllst,

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður ÖBÍ – réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ- réttindasamtaka


Mál nr. 44/2023. Mennta- og barnamálaráðuneytið
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.) [Drög að frumvarpi til laga] Umsögn ÖBÍ, 8. mars 2023