
Kvikmyndahátíð RIFF 2026 verður sett fimmtudaginn, 24. september í Háskólabíói.
Handhafar örorkuskírteinis, ellilífeyris-, eða námsmannaskírteinis fá 20% afslátt við kaup á bíómiðum RIFF.
Tvær leiðir eru í boði:
- Fara í miðasöluna í Háskólabíói við Hagatorg og framvísa þar skírteini. Starfsfólk útbýr miðann eða kortið með afsláttarkjörunum.
- Senda tölvupóst á ticketing@riff.is með staðfestingu á því að viðkomandi séu handhafar örorkuskírteinis, ellilífeyris-, eða námsmannaskírteinis. Við móttöku tölvupóstsins virkjar starfsfólk miðasölunnar afsláttarkjörin þannig að viðkomandi geti keypt miða á netinu, þar sem gefa þarf upp nafn og netfang.
Afgreiðslutími miðasölu RIFF í Háskólabíói er sem hér segir: 21., til 23. september milli kl. 11 og 16. Frá 24. september til 4. október á sýningartímum kvikmynda í Háskólabíó. Sjá sýningartíma

