Skip to main content
Flóttafólk og innflytjendurFrétt

23 samtök lýsa þungum áhyggjum af stöðu flóttafólks

By 21. ágúst 2023janúar 29th, 2024No Comments

ÖBÍ réttindasamtök hafa ásamt 22 öðrum mannréttindasamtökum, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau lýsa miklum áhyggjum af stöðunni sem upp er komin í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila.

Samtökin skora á stjórnvöld að bregðast tafarlaust við stöðunni með mannréttindi og mannúð að leiðarljósi. Samtökin hafa einnig boðað til upplýsingafundar mánudaginn 21. ágúst nk. kl. 17, í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72.

Yfirlýsingu samtakanna má lesa í heild sinni hér:

Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.

Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.

Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.

Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til samráðsfundar nk. miðvikudag 23. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Reykjavík, 18. ágúst 2023

Barnaheill

Biskup Íslands

FTA – félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd

Geðhjálp

GETA hjálparsamtök

Hjálparstarf kirkjunnar

Hjálpræðisherinn á Íslandi

Íslandsdeild Amnesty International

Kvenréttindafélag Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands

No Boarders

Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunni

Rauði krossinn á Íslandi

Réttur barna á flótta

Samhjálp

Samtökin 78

Solaris

Stígamót

UNICEF á Íslandi

UN Women á Íslandi

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna

Þroskahjálp

ÖBÍ réttindasamtök