Skip to main content
Frétt

Aðgengi á Menningarnótt

By 14. ágúst 2018No Comments

Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og verður haldin þann 18. ágúst 2018. Hátíðin fer að mestu leyti fram á lokuðu svæði í miðborginni. Lögð er áhersla á aðgengi fatlaðs fólks að hátíðinni og hefur borgin í samstarfi við ÖBÍ gert ráðstafanir til að aðgengi verði viðunandi.

Þannig verða til að mynda sérstök bílastæði opin fyrir hreyfihamlað fólk innan lokana á hátíðarsvæðinu í miðbænum. Hér má sjá yfirlit yfir þessi mál:

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Bílastæði fyrir hreyfihamlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

  • Skúlagötu – (ath að miklar framkvæmdir eru í nágrenni)
  • Við Tækniskólann
  • Neðst á Túngötu (við hornið á Suðurgötu)

Þessi bílastæði eru eingöngu fyrir P merkta bíla og verða auglýst sem slík.

Starfrækt verður leiga rafskutlum og hjólastólum á vegum Þekkingarmiðstöðvar Sjálfbjargar. Opið er á föstudag til kl. 18 í Hátúni 12. Þar er hægt að nálgast rafskutlu eða hjólastól og skila á mánudaginn. Sendið tölvupóst á Davíð Þ. Olgeirsson, í netfangið david@thekkingarmidstod.is fyrir frekari upplýsingar. 

 

Aðgengi inn á hátíðarsvæði

Miðborgin er lokuð allri bílaumferð nema fyrir þá sem hafa til þess leyfi, en þó með ákveðnum takmörkunum. Mannaðar lokanir eru á þó nokkrum stöðum en veita þeim bílum aðgengi sem eru með P-merki fyrir hreyfihamlaða.

Staðsetning mannaðra lokanna eru eftirfarandi:

  • Sæbraut/Snorrabraut (nota ef nýta á bílastæði v/ Skúlagötu)
  • Eiríksgata/Snorrabraut (nota ef nýta á bílastæði v/ Tækniskólann)
  • Túngata/Garðastræti aðeins innakstur (nota ef nýta á bílastæði v/ Túngötu)
  • Túngata/Ægisgata (nota ef nýta á bílastæði v/ Túngötu)

Ferðaþjónusta fatlaðra

Tekin hafa verið frá 4 sleppistæði í miðborginni fyrir ferðaþjónustuaðila og er Ferðaþjónustu fatlaðra er heimilt að nýta þau. Stæðin er ekki ætluð til að leggja í heldur einungis til þess að taka á móti og skila af sér farþegum.

Ferðaþjónustubílar munu stoppa á fjórum stöðum:

  • Hafrannsóknarstofnun við Skúlagötu 4
  • N1 Hringbraut (við hliðina á BSÍ)
  • Hallgrímskirkja
  • Tjarnargata 8 bílastæði – bak við Hjálpræðisherinn og HHÍ

Athygli er vakin á því að ekki er stoppað við Ráðhúsið.          

Aksturstími ferðaþjónustubílanna er frá 07:00-01:00 á Menningarnótt. Pantamá akstur á akstursþjónusta.is.

Salernisaðstaða

Salerni fyrir hreyfihamlaða eru staðsett á eftirfarandi stöðum.

  • Við Arnarhól (til hliðar við bílastæðahús Seðlabankans)
  • Á horni Bergþórugötu og Frakkastígs
  • Við Óðinstorg
  • Við Smáragötu
  • Á BSÍ
  • Portið hjá Iðnó (Vonarstrætismegin)
  • Hverfisgötu 23 (við Lýðveldisgarð)
  • Í Hljómskálagarði
  • Við Rastargötu
  • Í Ráðhúsinu – opið til kl. 21.00.
  • Í Hörpu – opið til kl. 23.00.
  • Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi – opið til kl. 23.00.
  • Listasafni Íslands – opið til kl. 22.00.

Menningarnótt - kort