Skip to main content
Flóttafólk og innflytjendurFrétt

Ákall um samráð vegna breytinga á lögum um útlendinga

By 6. september 2022janúar 29th, 2024No Comments

Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum um útlendinga og stendur til að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp þess efni á haustþingi Alþingis.

,,Á­ríðandi er að mikil­vægar laga­breytingar í mála­flokknum séu unnar í sam­ráði og sam­tali við aðila sem starfa við mála­flokkinn og hafa til þess sér­þekkingu og reynslu„, segir meðal annars í ákalli um samráð sem ÖBÍ og fleiri samtök afhentu ríkistjórninni í morgun.  Ákallið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Ákall um samráð við gerð frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga

Nú liggur fyrir að Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, muni leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga í fimmta sinn á haustþingi Alþingis og mun frumvarpið vera eitt af fyrstu
þingmálunum.

Hinn 19. maí sl. lýsti mikill meirihluti undirritaðra aðila yfir áhuga og vilja á því að koma á samráði og samvinnu um mótun laga í málaflokknum en án árangurs. Líkt og fram kom í viljayfirlýsingunni er nauðsynlegt að útlendingalöggjöfin verði þróuð áfram af ábyrgð og raunsæi til framtíðar. Til að tryggja víðtæka sátt sé mikilvægt að auka traust og gagnsæi um ákvarðanir útlendingayfirvalda, sem og móta skýra og heildstæða stefnu í málaflokknum, enda væri það í anda stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar og markmiða hennar.

Í umsögnum um fyrri útgáfu frumvarpsins lýstu umsagnaraðilar frá stofnunum og samtökum yfir skorti á samráði við gerð frumvarpsins auk verulegra vankanta á efni þess. Áríðandi er að mikilvægar lagabreytingar í málaflokknum séu unnar í samráði og samtali við aðila sem starfa við málaflokkinn og hafa til þess sérþekkingu og reynslu. Við vinnslu frumvarpsins sem lagt var fram í vor var lítið horft til þess en núgildandi lög um útlendinga sem tóku gildi í upphafi árs 2017 voru unnin í þverpólitísku og þverfaglegu samráði við hagaðila í málaflokknum.

Mikilvægt er að verndarkerfið sé í stakk búið til að mæta þeim aðstæðum sem uppi eru hverju sinni en það er ekki síður mikilvægt að breytingar séu unnar í sátt og samráði við fagaðila.

Í ljósi framangreinds óskum við undirrituð eftir því með þessari sameiginlegu yfirlýsingu að áður en lög sem þessi eru mótuð og skrifuð að samráð verði haft við alla þá hagsmunaaðila sem að málaflokknum koma svo lögin tryggi að réttindi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd séu vernduð og virt í hvívetna. Þá fyrst verður hægt að ná þeirri þverfaglegu sátt sem tókst við mótun fyrri laga.

Við skorum því á ríkisstjórnina að dýpka samtalið og samráðið og skipa starfshóp með fulltrúum hagsmunaaðila í málaflokknum svo hægt verði að ná þeirri faglegu sátt sem áður hefur tekist við mótun laganna.

Geðhjálp
Hjálparstarf kirkjunnar
Íslandsdeild Amnesty International
Kvenréttindafélag Íslands
Landssamtökin Þroskahjálp
Mannréttindaskrifstofa Íslands
Rauði krossinn á Íslandi
Samtökin ´78
Siðmennt
Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
UNICEF á Íslandi
UN Women á Íslandi
Þjóðkirkjan
Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ