Skip to main content
FréttHeilbrigðismálMálefni barnaMálþing og ráðstefnur

Upptaka: Getur barnið þitt beðið lengur?

Getur barnið þitt beðið lengur? Málþing um biðlista í heilbrigðiskerfinu verður haldið 5. mars næstkomandi kl. 13 á Nauthól. Tengill á dagskrá og nánari upplýisngar

ÖBÍ réttindasamtök stóðu fyrir málþinginu „Getur barnið þitt beðið lengur“ á Nauthól þann 5. mars 2024. Málþingið sneri að biðlistum fyrir börn í heilbrigðiskerfinu, umræðuefni sem veitir ekki af því að ræða vandlega.

Á dagskrá voru fyrirlestrar frá til að mynda verkefnastjóra farsældar barna hjá Reykjavíkurborg, staðgengli forstjóra hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins og yfirlækni á Geðheilsumiðstöð barna.

Málþingið var táknmáls- og rittúlkað og því  streymt.

Dagskrá í heild:

13:00 Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra opnar málþingið.

13:10 Umboðsmaður barna » Sigurveig Þórhallsdóttir, lögfræðingur.

13:30 Sjónarhóll » Bóas Valdórsson, sálfræðingur og framkvæmdastjóri: „Er biðlistamenning ákjósanleg fyrir börn og fjölskyldur?“

13:50 Hrönn Stefánsdóttir, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ: Reynslusaga.

14:10 Kaffihlé.

14:40 Ráðgjafar- og greiningarstöð ríkisins » Sólveig Sigurðardóttir, barnalæknir og staðgengill forstjóra: „Áskoranir í þjónustu og biðlistar á RGR.“

15:00 Velferðarsvið Reykjavíkurborgar » Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur og verkefnastjóri farsældar barna.

15:20 Geðheilsumiðstöð barna » Anna Sigríður Pálsdóttir, yfirlæknir: „Biðlistar barna á Geðheilsumiðstöð barna.“

15:40 Pallborðsumræða.