FréttMálþing og ráðstefnur

Beint: 18 ára og hvað svo?

By 4. nóvember 2026No Comments
Atvinnu- og menntahópur ÖBÍ í samstarfi við sérnámsbraut Framhaldsskólans í Mosfellsbæ heldur málþing þann 4. nóvember n.k. um þær breytingar sem verða á réttindum fatlaðra ungmenna þegar þau ná 18 ára aldri, bæði innan almannatrygginga- og skólakerfisins.
Ungmenni sem hafa fengið ýmis konar stuðning í grunnskóla standa oft frammi fyrir því að erfiðara reynist að fá sambærilegan stuðning eftir að þau hefja nám í framhaldsskóla.
Ef heilbrigðiskostnaður þeirra er mikill og þau þurfa að sækja um afslætti eða greiðsluþátttöku frá SÍ þurfa þau að vera á endurhæfingarlífeyri. En þá takmarkast einingafjöldinn við 12 til 20 ECTS og getur reynst veruleg hindrun fyrir ungmenni sem gætu, með viðeigandi stuðningi og auknum sveigjanleika, stundað meira nám og lokið því.
Markmið málþingsins er að ræða hvernig hægt sé að styðja betur við þennan hóp, draga úr brottfalli og auðvelda fötluðum ungmennum að ljúka námi á sama tíma og samnemendur þeirra.

Þátttakendur:

– Arndís Guðmundsdóttir deildarstjóri sérnámsbrautar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

– Reynslusögur nemenda

– Hrönn Stefánsdóttir, uppeldis og menntunarfræðingur og formaður Gigtarfélag Íslands.

– Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir prófessor á menntavísindasviði HÍ

– Ellen Óskarsdóttir barnahjúkrunarfræðingur og móðir langveikrar stúlku

– Björgvin Már Karlsson nemandi í Hringsjá

– Svanbjörg Sigmarsdóttir sviðsstjóri endurhæfingarsviðs TR