Skip to main content
AtvinnumálFréttKjaramálMálþing og ráðstefnur

Upptaka: Ertu ekki farin að vinna?!

By 30. janúar 2024janúar 31st, 2024No Comments
Ertu ekki farin að vinna? Málþing ÖBÍ 30. janúar 2024 um verðleikasamfélag. Tengill á viðburðinn.
Kjarahópur og atvinnu- og menntahópur ÖBÍ réttindasamtaka stóð fyrir málþinginu „Ertu ekki farin að vinna?“ þriðjudaginn 30. janúar 2024 frá kl. 13:00 til 16:00 á Nauthól.
 
Málþingið tók fyrir virði manneskjunnar óháð þátttöku á vinnumarkaði og (van)mat á framlagi fatlaðs fólks sem ekki getur tekið þátt á vinnumarkaði.  Þá var fjallað um inngildingu í atvinnu og hvernig hún birtist innan og utan vinnumarkaðar og áhrif kerfislægra hindrana fyrir atvinnuþátttöku fatlaðs fólks (s.s. tekjuskerðingar). Áhersla var á fólk með ósýnilegar fatlanir.
 
Dagskrá:
  • Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Sjónarmið ÖBÍ réttindasamtaka: Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
  • Virði manneskjunnar handan vinnu: Nanna Hlín Halldórsdóttir, sérfræðingur við Heimspekistofnun HÍ
  • Er vinnan mikilvægari en lífið? – Reynslusaga: Hrönn Stefánsdóttir, formaður atvinnu- og menntahóps ÖBÍ
  • Hindranir fyrir atvinnuþátttöku: Anna Margrét Bjarnadóttir, kjarahópi ÖBÍ réttindasamtaka
  • Vitundarvakning okkar allra – Reynslusaga: Kristín Auðbjörnsdóttir, móðir í endurhæfingu
  • Spurt og svarað
  • Kaffihlé
  • Hvað er inngilding í vinnu innan og utan vinnumarkaðar? Stefan C. Hardonk, dósent við HÍ
  • Ég get unnið með skerta starfsgetu – Reynslusaga: Atli Þór Þorvaldsson, viðskiptafræðingur með ósýnilega fötlun
  • Handverkskonur með örorkulífeyri – Reynslusaga: Guðbjörg Kristín og Þóra Eiríksdætur.
  • Er ég bara geðraskanirnar mínar? – Reynslusaga: Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ og valkyrja.
  • Spurt og svarað
  • Lokaorð: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, fundarstjóri.

Horfa má á upptöku hér að neðan: