
ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþingi mánudaginn 9. nóvembert 2026 í tilefni af því að þá verður ár liðið frá því að Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Aðgangur er gjaldfrjáls og skráning fer fram hér: https://www.obi.is/skraning-mannrettindi-i-framkvaemd/
Aðalfyrirlesari verður Prof. Dr. jur. Markus Schefer, LL.M., sem er einn helsti sérfræðingur heims um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Markus er prófessor í stjórnskipunarrétti og stjórnsýslurétti við Háskólann í Basel í Sviss og fyrrum nefndarmaður í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra munu ávarpa málþingið.
Málþingið fer fram í Hörpu og fundarstjóri verður Kári Hólmar Ragnarsson
Dagskrá málþings:
09:00 – Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ setur málþingið.
09:05 – Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Myndbandsávarp.
09:20 – Prof. Dr. jur. Markus Schefer, LL.M. Aðalfyrirlesari.
10:00 – Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Ávarp.
10:15 – Eiríkur Smith frá Mannréttindastofnun Íslands.
10:30 – Pallborðsumræður: Kári Hólmar Ragnarsson, Markus Schefer, Eiríkur Smith.
11:00 – Lok málþings.

