Skip to main content
FréttMálþing og ráðstefnur

Upptaka: Ryðjum menntabrautina – málþing um mikilvægi stuðningsúrræða

By 28. febrúar 2023No Comments

Stuðningsúrræði voru til umræðu á málþinginu Ryðjum menntabrautina sem ÖBÍ réttindasamtök stóðu fyrir á Nauthól í dag. Þar sögðu fulltrúar menntastofnana frá þeim úrræðum sem nemendum standa til boða og nemendur sögðu frá eigin reynslu.

Málþingið fjallaði um mikilvægi stuðningsúrræða í námi og fókusinn vará nemendur í efri bekkjum framhaldsskóla og háskólanema með ósýnilegar fatlanir sem þurfa á stuðningsúrræðum að halda, þ.e hvaða úrræði eru í boði og hvernig gangi fyrir nemendur að sækja þessa þjónustu og halda henni út námstímann.

Dagskrá


  • Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra flytur opnunarávarp
  • Hrafnhildur V. Kjartansdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands
  • Hildur Katrín Rafnsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Háskólanum í Reykjavík.
  • Gígja Baldursdóttir sérkennari hjá Hringsjá
  • Jónas Eyberg útskriftarnemandi frá Hringsjá
  • Brynhildur Arthúrsdóttir formaður LAUF
  • Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir nemandi í menntavísindum og heilsueflingu við University of Florida
  • Anna Kristín Jensdóttir náms- og starfsráðgjafi stofnandi RéttindaRonju
  • Jóhanna Halldórsdóttir hjá Gigtarfélaginu um reynslu af LHÍ

Hér má horfa á upptöku af málþinginu: