AðgengiFréttHúsnæðismálMálþing og ráðstefnur

Beint streymi: Ég er kominn heim

By 23. september 2026No Comments

Húsnæðis- og aðgengishópur ÖBÍ réttindasamtaka standa saman að málþingi um fjölbreytt aðgengi fatlaðs fólks að húsnæði miðvikudaginn, 23. september 2026 frá klukkan 14:00 til 16:00.

Hvar: Hilton Nordica Reykjavík, Suðurlandsbraut 2.

Það er fátt betra en að koma heim eftir amstur dagsins en því miður er heimkoman ekki jafn auðveld fyrir alla og stundum ómöguleg í óbreyttu ástandi. Húsnæðishópur og aðgengishópur ÖBÍ réttindasamtaka standa saman að málþingi um takmarkaða möguleika fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði.

Á málþinginu heyrum við frásagnir fatlaðs fólks úr ólíkum áttum af rýru húsnæðisframboði, ósveigjanlegu kerfi, aðgengishindrunum og skorti á stuðningi til viðeigandi aðlögunar. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður þar sem leitað verður lausna við þeim áskorunum sem fatlað fólk stendur frammi fyrir.

Erindi málþings:
Aðlögun húsnæðis og opinberir sjóðir
Félagslegt leiguhúsnæði sveitarfélaganna – Viðmið kerfisins og aðgengi
Fatlað fólk og eigið húsnæði – Aðgengi að lánum og sóknarfæri til úrbóta
Gömul hús og nýbyggingar –  Vandamál fortíðar eða framtíðar?
Hlé (15 mínútur)
Pallborðsumræður