Skip to main content
FréttHúsnæðismálMálþing og ráðstefnur

Upptaka: Þetta er allt í vinnslu… Málþing um húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks

Hver er staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði? Hvaða hindranir standa í vegi fyrir þessum fjölbreytta hópi fólks og hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til að jafna aðgengi þeirra að húsnæðisöryggi?

Húsnæðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stóð fyrir málþinginu „Þetta er allt í vinnslu… húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks“ þann 7. maí á Hótel Reykjavík Grand, í Háteigi frá kl. 15:30 – 17:00. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra opnaði fundinn.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit um aðgerðir í húsnæðismálum fatlaðs fólks virðast lausnirnar alltaf vera rétt handan við hornið og fólk er beðið um að vera þolinmótt aðeins lengur. Sú staða er sérstaklega slæm fyrir ungt fatlað fólk sem fær ekki tækifæri til að lifa sjálfstæðu lífi líkt og ófatlaðir jafnaldrar þeirra. Á fundinum ræðum við hvernig staðan er og við heyrum frásagnir ungs fólks af reynslu sinni af húsnæðismarkaðnum.

Frummælendur:

María Pétursdóttir, formaður húsnæðishóps ÖBÍ
Sveinbjörn Benedikt Eggertsson varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun
Áslaug Ýr Hjartardóttir nemandi við Háskóla Íslands
Styrmir Hallsson fulltrúi Sjálfsbjargar í UngÖBÍ
Alexander Steingrímsson hugaraflsfélagi og sjálfboðaliði