Skip to main content
FréttKjaramálMálefni barnaMálþingSkýrsla

Brotthvarf úr skólum – birtingarmynd ójafnra tækifæra?

By 2. mars 2022ágúst 31st, 2022No Comments
Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi í samvinnu við félags- og vinnamarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið á Grand Hótel 15. mars kl. 14-16 undir yfirskriftinni Brotthvarf úr skólum – birtingarmynd ójafnra tækifæra? Viðburðinum verður einnig streymt á tengli sem birtist á síðum ráðuneytanna skömmu fyrir upphaf málþings. Á málþinginu verður meðal annars kynnt ný skýrsla, Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum.

Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að brotthvarf sé birtingarmynd ójafnra tækifæra í íslensku samfélagi. Í skýrslunni eru gögn Hagstofu Íslands og mennta- og menningarmálaráðuneytis greind og horft til félagslegs og efnahagslegs bakgrunns nemenda ásamt námsárangri á grunnskólastigi. Skýrsluna unnu Kolbeinn H. Stefánsson, félagsfræðingur og Helgi Eiríkur Eyjólfsson, sérfræðingur. Frétt um skýrsluna.

Skráning á málþingið.

Þeir sem munu fylgjast með í streymi þurfa ekki að skrá sig.

Dagskrá málþings 15. mars kl.14-16 í Háteigi á Grand Hótel

Stjórnandi málþings er Karen Kjartansdóttir, ráðgjafi

Kl.14:00 Málþing opnað: Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktar

Kl.14:05 Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra

Kl.14:10 Kynning: Kolbeinn H. Stefánsson, félagsfræðingur og Helgi Eiríkur Eyjólfsson, sérfræðingur, kynna niðurstöður skýrslunnar Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum

Kl.14:55 Viðbrögð við tillögum skýrslunnar

  • Andrea Jónsdóttir, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema
  • Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
  • Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, samhæfingarstjóri PEPP – samtaka fólks í fátækt

Kl.15:10 Kaffihlé

Kl.15:20 Pallborð ræðir skýrsluna með áherslu á tillögur hennar og næstu skref

  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Svandís Ingimundardóttir, skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands
  • Jónína Kárdal, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa
  • Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands

Kl.15:50 Lokaorð: Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra

Kl.16:00 Málþingi slitið: Sigurveig Gunnarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu