![](https://www.obi.is/wp-content/uploads/2018/05/fotlunarfraedi.jpg)
Þann 5. júní næstkomandi rennur út umsóknarfrestur um diplómanám í fötlunarfræði. Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast fræðilega og hagnýta þekkingu á málefnum fatlaðs fólks. Hægt er að fá diplómanámið metið sem hluta af MA-námi í fötlunarfræðum að uppfylltum inntökuskilyrðum.
Nánari upplýsingar um námið veita dr. Snæfríður Þóra Egilson, námsbrautarformaður, og Ása Bernharðsdóttir, verkefnisstjóri.