
Mynd: Blindrafélagið
ÖBÍ réttindasamtök óska Elionu Gjecaj hjartanlega til hamingju með að hafa lokið doktorsprófi í fötlunarfræði frá Háskóla Íslands.
Doktorsritgerð hennar, Disabled Women and Violence: Access to Justice (Fatlaðar konur og ofbeldi: Aðgengi að réttlæti), fjallar um reynslu fatlaðra kvenna af því að leita réttar síns eftir kynbundið ofbeldi. Með rannsókninni varpar Eliona ljósi á þær hindranir sem geta staðið í vegi fyrir aðgengi að stuðningi, þjónustu og réttarkerfinu.
Verkefnið tekur á brýnu mannréttindamáli og eykur skilning á stöðu fatlaðra kvenna, um leið og það bendir á leiðir til úrbóta. Niðurstöðurnar eru mikilvægt framlag til umræðu um jafnrétti, vernd og aðgengi að réttlæti fyrir öll.
Við óskum Elionu innilega til hamingju með doktorsnafnbótina og óskum henni velfarnaðar í framtíðinni.
Til hamingju, Eliona!

