Skip to main content
FréttMálefni barnaSjúkratryggingar

Endurgreiðsla tannlæknakostnaðar vegna alvarlegra meðfæddra galla eða slysa

By 5. ágúst 2021september 1st, 2022No Comments

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest rammasamning Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Í stað endurgreiðslugjaldskrár frá árinu 2014 er nú búið að semja við tannlækna um föst verð sem hækkuð verða tvisvar á ári.  Samningurinn gildir frá 15. júlí 2021 til og með 30. september 2022.

Það hefur legið lengi fyrir að fólk með alvarlegan sértæka tannvanda nýtur ekki jafnræðis í samanburði við aðra hópa þegar kemur að greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í kostnaði vegna tannlækninga. Umræddir einstaklingar hafa fengið greiðsluþátttöku samkvæmt gjaldskrá sem ekki hefur verið uppfærð frá árinu 2014 (gjaldskrá nr. 305/2014) með þeim afleiðingum að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hefur verið minnkandi hluti af kostnaði sjúkratryggðra frá árinu 2014.

Hér undir getur einnig fallið kostnaður vegna tannlækninga í kjölfar alvarlegrar glerungseyðingar, sem oft er afleiðing lyfjanotkunar og lélegrar munnavatnsframleyðslu. Þó þarf tannlæknir að meta hvert tilvik fyrir sig. 

Samningurinn tekur til nauðsynlegra tannlækninga, annarra en tannréttinga, fyrir sjúkratryggða, sem veitt er af löggiltum tannlæknum vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma, sbr. 20. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og III. kafla reglugerðar nr. 451/2013, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar. Áætlaður kostnaður við samninginn er 90 milljónir fyrir árið 2021 og 180 milljónir fyrir árið 2022.