Skip to main content
Frétt

Enginn með skerta starfsgetu í starfi hjá fjármálaráðuneytinu

By 29. júní 2020No Comments
Í svari fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, við fyrirspurn Oddnýjar Harðardóttur þingmanns, kemur fram að enginn með skerta starfsgetu er í starfi hjá ráðuneyti hans.
Fyrirspurn Oddnýjar var í tveimur liðum: 
 
Í fyrsta lagi:   Hve margir einstaklingar með skerta starfsgetu, sbr. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði, starfa í fjármála- og efnahagsráðuneytinu?  Svar ráðherra er að enginn starfsmaður með skerta starfsgetu starfar í ráðuneytinu um þessar mundir.
 
Einnig var spurt hvort mótuð hefði verið stefna í ráðuneytinu varðandi ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu. Svar ráherra er ekki flókið. Ekki hefur verið mótuð sérgreind stefna fyrir ráðuneytið um ráðningar einstaklinga með skerta starfsgetu. Einnig segir í svarinu að í mannauðsstefnu Stjórnarráðsins komi fram að allt starfsfólk eigi að eiga sömu möguleika á að geta nýtt hæfileika sína í starfi og skal ekki sæta mismunum af nokkrum toga. Þetta tekur m.a. til starfsfólks með skerta starfsgetu.
 
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins segir svar ráðherra að mörgu leiti merkilegt. Þarna fari sá ráðherra sem hvað harðast hafi talað fyrir starfsgetumati, og að ekkert andrými væri í fjárlögum fyrir öryrkja fyrr en starfsgetumat yrði tekið upp.
Það er því sérkennilegt, svo ekki sé dýpra í árina tekið, að hans eigið ráðuneyti skuli ekki ganga á undan með góðu fordæmi, og ráða inn fólk með skerta starfsgetu.“