Skip to main content
AðgengiFrétt

Tvær leiðir strætó á landsbyggð nú aðgengilegar

By 3. mars 2022ágúst 31st, 2022No Comments
Hjólastólanotendur geta nú pantað ferðir með landsbyggðavögnum á leiðum 51 (Reykjavík – Selfoss) og 57 (Reykjavík – Akureyri). Þjónustan er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Strætó. Þó er aðeins einn vagn sem aðgengi er að, og einungis pláss fyrir einn hjólastól í einu. 

Þjónustan varð virk miðvikudaginn 23. febrúar. Aðeins einn vagn á hvorri akstursleið er með hjólastólaaðgengi og því þarf að panta far með fyrirvara. Þjónustan miðast við ákveðnar tímasetningar í tímatöflum akstursleiðanna. Þá eru aðeins ákveðnar biðstöðvar með aðgengi fyrir hjólastólanotendur.

Landsbyggðarvagn með hjólastólaaðgengi er pantaður með því að hringja í þjónustuver Strætó í síma 540-2700 minnsta kosti einum degi fyrir áætlaða brottför skv. tímatöflu.

Leið 51

Ferðir sem hægt er að panta landsbyggðarvagn með hjólastólaaðgengi.

Virkir dagar:

· 08:50 ferð frá Selfoss – N1 til Mjóddar

· 13:50 ferð frá Selfoss – N1 til Mjóddar

· 10:00 ferð frá Mjódd til Selfoss – N1

· 15:00 ferð frá Mjódd til Selfoss – N1

Laugardagar og sunnudagar:

· 08:50 ferð frá Selfoss – N1 til Mjóddar

· 14:50 ferð frá Selfoss – N1 til Mjóddar

· 13:15 ferð frá Mjódd til Selfoss – N1

· 17:30 ferð frá Mjódd til Selfoss – N1

Aðeins er aðgengi fyrir hjólastóla á biðstöðvunum Mjódd, Hveragerði og Selfoss-N1.

 

Leið 57

Ferðir sem hægt er að panta landsbyggðarvagn með hjólastólaaðgengi.

Alla daga:

· 09:00 ferð frá Mjódd til Akureyrar*

· 16:20 ferð frá Akureyri til Mjóddar*

Aðeins er aðgengi fyrir hjólastóla á biðstöðvunum Mjódd, Akratorg, Borgarnes, Staðarskáli, Blönduós, Sauðárkrókur og Akureyri – Hof

 

*Á fimmtudögum er aðeins ekið milli Mjóddar og Borgarness