FréttHjálpartækiListir & menning

Heimsókn í nýtt sköpunarrými í Hátúni 10C

By 13. maí 2026maí 18th, 2026No Comments

Nýtt FabLab mun á næstu mánuðum opna í Hátúni 10C, í húsnæði Örtækni. Aðstöðunni er ætlað að verða vettvangur fyrir skapandi tækniþróun, frumgerðasmíði og fjölbreytt verkefni sem tengja saman nýsköpun, aðgengi og samfélagslega þátttöku.

Fyrirtækið Örtækni sérhæfir sig í smíði og samsetningu á meðal annars köplum, raftækjum og tæknibúnaði og starfsfólk býr yfir víðtækri reynslu og sterkri innanhússþekkingu á tæknisviði sem mun nýtast gestum FabLabsins afar vel.

Nýverið fékk starfsfólk ÖBÍ að vera meðal fyrstu gesta til að heimsækja aðstöðuna og prófa hluta af þeim búnaði sem þar verður í boði. Heimsóknin markaði ákveðin tímamót í undirbúningi verkefnisins, en FabLabið hefur hlotið styrk frá ÖBÍ til uppbyggingar og þróunar. Við erum jafnframt ótrúlega þakklát fyrir frábæra heimsókn og þær góðu viðtökur sem starfsfólk Örtækni veitti hópnum.

Í heimsókninni fengu gestir innsýn í þá fjölbreyttu möguleika sem aðstaðan mun bjóða upp á. Þar verða meðal annars öflugir þrívíddarprentarar sem gera fólki kleift að hanna og framleiða hluti frá grunni eða vinna út frá tilbúnum fyrirmyndum. Einnig verður boðið upp á þrívíddarskanna sem hægt verður að nota til að skanna inn hluti eða varahluti og endurgera þá með prentun. Þar verður einnig í boði laserskeri sem getur bæði skorið út og grafið myndefni í tré, málm, flísar og fleiri efni. Hægt verður að læra á lóðbolta, nota saumavélar og nýta aðstöðuna til raftækjaviðgerða.

Markmiðið er að skapa opið og aðgengilegt umhverfi þar sem fólk getur komið með hugmyndir, gert tilraunir, þróað verkefni og tileinkað sér nýja færni í stuðningsríku og skapandi samfélagi. Margt spennandi í vændum þessu tengt á næstunni!

Starfsfólk ÖBÍ heimsækir Örtækni