Skip to main content
Frétt

Hvatning til formanna verðandi ríkisstjórnarflokka.

By 8. nóvember 2021No Comments
Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu til formanna Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem nú eru í stjórnarmyndunarviðræðum, að í stjórnarsáttmála komandi ríkisstjórnar verði að finna skýran vilja til breytinga og endurskoðunar á framfærslukerfi almannatrygginga.

Yfirlýsingin er hér í heild sinni:

Landssamtökin Þroskahjálp, Landssamtökin Geðhjálp og Öryrkjabandalag Íslands hvetja komandi ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, til að setja í sáttmála sinn skýran vilja til breytinga og endurskoðunar á framfærslukerfi almannatrygginga.

Það er okkar vilji að allt ferli við endurskoðun kerfisins verði unnið í samráði við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og að breytingar á kerfinu auki tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Fjölga þarf störfum og starfsúrvali til að mæta þörfum fólks sem hefur misjafna getu. Hið opinbera sýni gott fordæmi með því að skapa breytt úrval hlutastarfa þar sem viðeigandi aðlögun er viðhöfð og hvetji vinnumarkaðinn til samstarfs.

Markmiðið verði að skapa samfélag þar sem allir hafa tækifæri og enginn er skilinn eftir.

Undirrituð lýsa yfir miklum vilja til samstarfs og samráðs um þá vegferð.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar
Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins.