Skip to main content
FréttHvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2018

By 27. nóvember 2018september 8th, 2023No Comments

Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalags Íslands 2018 verða veitt á Grand hóteli kl. 17-19 mánudaginn 3. desember. Dagskráin er hér að neðan.

Hvatningarverðlaunin eru veitt þeim sem hafa með verkum sínum stuðlað aðeinu samfélagi fyrir alla og endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks.

Verðlaunin eiga að efla frumkvæði til nýrra verkefna og hugmyndavinnu í málaflokknum og skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk. Þau eiga að vera hvatning til að gera enn betur til innleiðingar á samfélagi sem endurspeglar einkunnarorð ÖBÍ: Eitt samfélag fyrir alla. Verðlaunin eru veitt ár hvert á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2007. Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, er verndari verðlaunanna.

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; einstaklings, fyrirtækis eða stofnunar, umfjöllunar eða kynningu og verkefni innan aðildarfélaga ÖBÍ. 

Allir velkomnir.

Tilnefningar til Hvatningarverðlauna ÖBÍ:

Einstaklingar:

  • Bergþóra Bergsdóttir

Fyrir gerð fræðslubæklinga um MS-sjúkdóminn fyrir sjúklinga og aðstandendur.

  • Erna Arngrímsdóttir

Fyrir störf í þágu psoriasis- og exemsjúklinga.

  • Rúnar Björn Herrera Þorkelsson

Fyrir baráttu sína fyrir málstað fatlaðs fólks og sér í lagi fyrir innleiðingu á notendastýrðri persónulegri aðstoð.

Fyrirtæki-stofnanir:

  • Bataskóli Íslands

Fyrir þáttöku í því að skapa úrræði fyrir þá sem þurfa stuðning við að koma lífi sínu í réttan farveg.

  • Kærleikssamtökin

Fyrir að starfa í þágu heimilislausra.

  • Trúðavaktin

Fyrir að koma með gleði og hlátur inn á Barnaspítalann.

Umfjöllun/kynning

  • Lífið á eyjunni – stuttmynd

Fyrir mikilvægt framtak í að opna umræðu og umfjöllun um andlega líðan drengja.

  • Knattspyrnusamband Íslands

Fyrir ómetanlegan stuðning við kynningarátak Parkinsonsamtakanna,

Sigrum Parkinson

  • Pieta samtökin á Íslandi

Fyrir faglega og opna umræðu um sjálfsvíg.

 

Dagskrá 

 

17.00         Veislustjóri, Gísli Einarsson, býður gesti velkomna 

17.05         Setning, Fríða Rún Þórðardóttir, formaður undirbúningsnefndar Hvatningarverðlauna ÖBÍ 

                 Tilnefningar kynntar

17:30         Lífið á eyjunni-  stuttmynd- kynning 

17.35        Trúðavaktin – sjúkrahústrúðarnir 

17.45        Hlé  – boðið upp á léttar veitingar 

18:05        Ávarp, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ 

18.10        Hr. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands  ávarp. 

                Verðlaunaafhending  

 

Að lokinni athöfn verður myndataka af öllum sem fengu tilnefningu 

Veislustjóri: Gísli Einarsson 

 

Hér má sá myndir frá afhendingu Hvatningarverðlaunanna 2017.