AðgengiFrétt

IAAP Nordic og ÖBÍ halda alþjóðlega ráðstefnu um stafrænt aðgengi í Hörpu í haust

By 26. júní 2026júlí 7th, 2026No Comments

Þann 1. október 2026 fer fram alþjóðleg ráðstefna í Hörpu í Reykjavík undir yfirskriftinni „WAD: Iceland onboard – from requirements to reality“. Ráðstefnan er haldin af IAAP Nordic í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök og er styrkt af Ský og EBU. Hún fjallar um innleiðingu Evróputilskipunar um stafrænt aðgengi (Web Accessibility Directive) í íslenskri löggjöf og framkvæmd.

Markmið ráðstefnunnar er að tengja saman stefnumótun, framkvæmd og raunverulega notkun stafrænnar þjónustu með aðgengi að leiðarljósi. Á dagskrá verða erindi frá alþjóðlegum sérfræðingum á borð við Lainey Feingold, Susanna Laurin, Katrin Langensiepen, Joseph Seychell, Mikael Becker,  Jakob Rosin og Rósa Maríu Hjörvar, sem fjalla um aðgengismál út frá ólíkum sjónarhornum, þar á meðal stefnumótun, eftirliti og reynslu notenda með fötlun.

Eftir hádegi verður lögð áhersla á hagnýta nálgun þar sem þátttakendur kynnast reynslu notenda í gagnvirkum stöðvum, auk vinnustofa þar sem farið verður yfir hvernig uppfylla megi aðgengiskröfur í mismunandi hlutverkum, svo sem í hönnun, þróun, innkaupum og efnisgerð.

Viðburðurinn er bæði ætlaður sérfræðingum og öllum sem koma að mótun og framkvæmd stafrænnar þjónustu. Hluti dagskrár er opinn öllum þátttakendum og boðið er upp á bæði staðbundna þátttöku í Hörpu og rafræna þátttöku.

Skráning  og nánari upplýsingar má finna hér!

Eftirfarandi sérfræðingar og fyrirlesarar taka þátt í ráðstefnunni:

  • Alain Vagner – Coordinator for Open Data, Access to Information and Digital Accessibility, Information and Press Service of the Luxembourg Government.
  • Daniel Koskinen – Senior Accessibility Specialist, GoFore (CPWA); IAAP Nordic Advisory Council Member.
  • Emma Kataja – Senior UX Designer and Accessibility Specialist, Futurice (CPACC); IAAP Nordic Advisory Council Member.
  • Jakob Rosin – Board Member and Chair, Accessibility Working Group, European Blind Union.
  • Joseph Seychell – Chief Officer, ICT & Digital Services, Malta Communications Authority.
  • Katrin Langensiepen – Member of the European Parliament (Greens/EFA Group); Vice-Chair of the Disability Intergroup; Chair of the CRPD Network in the European Parliament.
  • Kitty Toft – CPACC; Tietoevry; IAAP Nordic Project Assistant.
  • Kristian M. Simonsen – Inklud AS; IAAP Nordic Advisory Council Member.
  • Lainey Feingold – Disability Rights Lawyer, Author, and Public Speaker.
  • Malin Hammarberg – Senior UX Designer and Accessibility Specialist, Funka Foundation (CPWA); IAAP Nordic Advisory Council Member.
  • Mikael Becker – Lecturer, Mid Sweden University.
  • Radek Pavlíček – Digital Accessibility Specialist (CPWA), Teiresias Support Centre, Masaryk University.
  • Rósa María Hjörvar – Digital Project Manager, Icelandic Disability Alliance (ÖBÍ).
  • Susanna Laurin – G3ict and IAAP Representative to the EU; IAAP Nordic Lead.
  • Tone Alexandra Sletnes Larsen – Senior Adviser, Norwegian Directorate for Children, Youth and Family Affairs (Bufdir).