
Pexels
ÖBÍ réttindasamtök taka þátt í átakinu Hey Apple!, þar sem skorað er á Apple að bjóða upp á íslensku í tækjum sínum. Skortur á íslenskum tungumálastuðningi er meðal annars hindrun fyrir fatlað fólk sem reiðir sig á stafrænar aðgengislausnir.
Siri skilur ekki íslensku, iPhone-símar bjóða ekki upp á íslenska raddstýringu og ekki er hægt að láta innbyggðan skjálesara lesa texta upp á íslensku. Fyrir fólk sem treystir á þessa tækni getur það skipt verulegu máli að geta notað hana á eigin tungumáli.
Stafrænt aðgengi snýst meðal annars um að fólk geti nýtt sér tæknina án aðstoðar annarra. Það á ekki að þurfa að kunna ensku til að geta stjórnað símanum sínum eða fengið upplýsingar lesnar upp.
Íslenskar tölvuraddir, talgreining og málgögn eru þegar til staðar og standa tæknifyrirtækjum til boða án endurgjalds. Microsoft og Google bjóða þegar upp á ýmsar lausnir á íslensku og nú er skorað á Apple að fylgja í kjölfarið.
ÖBÍ réttindasamtök hvetja fólk til að leggja átakinu lið og skora á Apple að bæta íslensku við tæki sín.

