
Adobe Stock
Skortur á stuðningi við íslensku í Apple-tækjum getur skapað verulegar hindranir fyrir fatlað fólk og takmarkað möguleika þess til sjálfstæðis. Nú er leitað eftir reynslusögum sem sýna hvaða áhrif þetta hefur á daglegt líf.
Frá þessu er greint á vef stjórnarráðsins, en Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, átti fund með fulltrúum Apple í apríl þar sem hann óskaði eftir að íslenska yrði innleidd í stýrikerfi fyrirtækisins.
Fyrir margt fatlað fólk geta aðgengislausnir í snjalltækjum skipt sköpum. Raddstýring getur til dæmis gert fólki með hreyfihömlun kleift að stjórna símanum sínum, eiga samskipti og sinna daglegum verkefnum án aðstoðar annarra. Raddstýring Apple styður hins vegar ekki íslensku og því geta íslenskir notendur ekki nýtt þessa tækni til fulls.
„Aðgengi að snjalltækni skiptir í dag öllu máli og sérstaklega fyrir fatlað fólk. Tæknin getur fjarlægt hindranir og fjölgað til muna tækifærum til menntunar og atvinnu,“ hefur stjórnarráðið eftir Rósu Maríu Hjörvar, stafrænum verkefnastjóra hjá ÖBÍ réttindasamtökum.
Þín reynsla getur skipt máli
Ráðuneytið vinnur nú að því að fá Apple til að innleiða íslensku í tæki sín og aðgengislausnir. ÖBÍ réttindasamtök og Almannarómur eru samstarfsaðilar í verkefninu.
Nú er óskað eftir reynslusögum sem sýna hvaða hindranir skortur á íslensku skapar og hvernig íslenskur tungumálastuðningur gæti bætt líf fólks.
ÖBÍ hvetja fatlað fólk, aðstandendur og fagfólk til að deila reynslu sinni. Dæmin geta varðað allt frá raddstýringu og samskiptum til náms, atvinnu og sjálfstæðis í daglegu lífi.
Lestu nánar og sjáðu hvernig þú getur deilt þinni reynslu á vef Stjórnarráðsins.

