Skip to main content
Frétt

Jafningjanámskeið Tabú.

By 16. mars 2021No Comments
Jafningjanámskeið Tabú eru 6 vikna námskeið fyrir fatlað og langveikt fólk. Námskeiðin eru styrkt af félags- og dómsmálaráðuneyti og eru einn liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi á tímum Covid-19.

Tabú eru að fara af stað með jafningjanámskeið fyrir fatlað fólk sem styrkt er af félags- og dómsmálaráðuneyti. Alls verða haldin 4 námskeið á þessu ári í kynjaskiptum hópum. 

Á námskeiðunum er fjallað um hvernig okkur líður þegar réttindi okkar eru brotin vegna þess að við erum fötluð og/eða langveik og mögulega einnig vegna annarra þátta, t.d. af því að við erum hinsegin, af erlendum uppruna, fátæk eða kynsegin.

Á námskeiðunum viljum við að þátttakendur geti talað um tilfinningar sínar og reynslu án þess að vera hrædd um hvað öðrum finnst og án þess að verða fyrir fordómum. Við viljum líka að þátttakendur fái meira hugrekki til þess að segja hvað þeim finnst, vera baráttufólk og breyta samfélaginu. Alls verða haldin 4 námskeið á þessu ári í kynjaskiptum hópum.  

Við leggjum áherslu á að engin manneskja er of mikið eða of lítið fötluð/langveik til þess að taka þátt í jafningjanámskeiðum Tabú. 

Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu.

 

Næsta jafningjanámskeið:

 

Dagsetningar: 7. apríl – 12. maí ’21

Hvenær: Á miðvikudagskvöldum kl. 19:30-21:30

Fyrir: Fatlaðar og langveikar konur* (sís og trans) og fatlað kynsegin fólk

Staður: Gerðuberg, Breiðholt

Umsjón: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og  Freyja Haraldsdóttir

Hámarksfjöldi: 10 þátttakendur

Það kostar ekkert að taka þátt á námskeiðunum.

Skráningu lýkur 19. mars!

Skráning hér: www.tabu.is/skraning