Skip to main content
Frétt

Jóipé og Króli verða á Ungmennaþingi ÖBÍ

By 7. mars 2019No Comments

Ungmennaþing ÖBÍ verður haldið á laugardag. Þingið fer fram á Grand hóteli kl. 13-16. 

Við bjóðum velkomna alla krakka á aldrinum 12-18 ára sem eru með fatlanir, raskanir eða langvinna sjúkdóma, systkini þeirra  og ungmenni sem eiga fatlaða/langveika foreldra.

Viðfangsefnið er: Hverju viltu breyta í?

  • skólakerfinu
  • tómstundastarfi
  • íþróttum
  • aðgengismálum
  • samfélaginu
  • öðru

Boðið verður upp á góðar veitingar og við tökum okkur líka pásu frá þingstörfum og fylgjumst með röppurunum Jóapé og Króla troða upp. 

Ekki hika við að sýna þig og sjá aðra. Skráning á Ungmennaþing ÖBÍ er hér.