
Margt var um manninn og mikil skemmtun þegar ÖBÍ réttindasamtök fögnuðu 65 ára afmæli sínu í Mannréttindahúsinu í vikunni. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína í hús, sem og öllum þeim sem hafa staðið með okkur í réttindabaráttu fatlaðs fólks í gegnum tíðina.
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávörpuðu samkomuna. DJ ANNAMARKAR lék tónlist og aðildarfélög ÖBÍ voru með kynningarbása þar sem þau kynntu starfsemi sína fyrir gestum.

