
Héraðsdómur Reykjavíkur
Aðalmeðferð í máli Sigríðar Jónsdóttur, sem lýtur að meintri mismunun á grundvelli fötlunar við ráðningu í opinbert starf, hefst í héraðsdómi Reykjavíkur í fyrramálið. Málið varðar mikilvægar spurningar um jafna meðferð á vinnumarkaði og réttarstöðu fatlaðs fólks við atvinnuleit, en ÖBÍ styrkir málið.
Sigríður höfðaði mál til að láta reyna á lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði, en samkvæmt þeim er atvinnurekendum óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli tiltekinna þátta, þar á meðal fötlunar. Hún telur sér hafa verið mismunað þegar hún sótti um starf hjá hinu opinbera, þar sem hún var ekki boðuð í starfsviðtal þrátt fyrir að gögn málsins bendi til þess að hún hafi verið með meiri menntun og lengri og meira viðeigandi starfsreynslu en þeir umsækjendur sem síðar voru ráðnir.
Í málinu verður meðal annars tekist á um hvort brotið hafi verið gegn þeirri meginreglu stjórnsýsluréttar að ráða skuli hæfasta umsækjanda í opinbert starf og hvort mat á umsóknum hafi verið málefnalegt og forsvaranlegt. Jafnframt reynir á hvernig ákvæði laga um jafna meðferð á vinnumarkaði verða túlkuð og beitt þegar leiddar eru líkur að því að umsækjandi hafi sætt óhagstæðari meðferð vegna fötlunar.
Málið hefur víðtæka þýðingu fyrir fatlað fólk á vinnumarkaði almennt. Niðurstaða þess getur varpað ljósi á það hvaða vernd lögin veita og hvers megi vænta þegar grunur vaknar um beina eða óbeina mismunun í ráðningarferli.
ÖBÍ réttindasamtök telja mikilvægt að látið sé reyna á réttindi fatlaðs fólks fyrir dómstólum þegar ástæða er til og styðja að mál sem þetta fái efnislega úrlausn. Skýrar lagalegar niðurstöður skipta miklu máli fyrir réttarríkið, framkvæmd jafnréttislöggjafar og stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu.

