Skip to main content
Frétt

Menningarnótt og aðgengi

By 12. ágúst 2015No Comments

P-merkt stæði, salerni og aðkoma fyrir aksturþjónustu fyrir fatlað fólk.

Menningarnótt er á næsta leiti með viðburðaríka og skemmtilega dagskrá sem borgarbúar hafa lagt mikið á sig til að skapa saman.

Á Menningarnótt er miðborgin lokuð af öryggisástæðum fyrir bílaumferð frá klukkan 07:00 að morgni 22. ágúst. Áætlað er að miðbærinn verði opinn á ný fyrir bílaumferð um 01:00.

Þjónustu við fatlaða hátíðargesti á þessum degi verður háttað þannig:

Salerni

Salerni fyrir fatlaða verða á eftirfarandi stöðum:

  • Á bílastæði við Laugaveg 77
  • Við Hverfisgötu 28
  • Í Lækjargötu við Íslandsbanka
  • Í Hörpu

Bílastæði sérmerkt fyrir fatlað fólk inni á hátíðarsvæðinu

Einstaklingar með P-merki fatlaðra sýnileg í bílum sínum geta lagt þeim á eftirfarandi stöðum:

  • Bílastæðaplani við Tækniskólann á Skólavörðuholti (með aðgengi á gatnamótum Eiríksgötu og Snorrabrautar)
  • Bílastæðaplani á horni Túngötu og Suðurgötu í nágrenni við Ráðhús Reykjavíkur (með aðgengi á gatnamótum Garðastrætis og Túngötu)
  • Bílastæðaplani vestast á Skúlagötu, framan við Sjávarútvegsráðuneytið (með aðgengi á gatnamótum Barónstígs við Hverfisgötu)

Akstursþjónusta fatlaðs fólks og aldraðra á Menningarnótt

Aksturþjónustan verður með hefðbundnu sniði á Menningarnótt. Eins og fyrr segir er umferð inn í miðborgina verulega takmörkuð þennan dag. Því er aðeins hægt að panta ferðir til og frá eftirfarandi stöðum:

  • Bílastæðaplani við Tækniskólann á Skólavörðuholti
  • Bílastæðaplani á horni Túngötu og Suðurgötu í nágrenni við Ráðhús Reykjavíkur
  • Bílastæðaplani vestast á Skúlagötu, framan við Sjávarútvegsráðuneytið.

Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að bóka ferðir með góðum fyrirvara til þess að auðvelda skipulagningu akstursins. Hægt verður að panta síðustu heimferð kl. 00.00. Viðbúið er þó að einhver seinkun kunni að verða sökum umferðar og álags. Við biðjum því alla um að sýna þolinmæði og skilning af þeim sökum.

Stjórn Menningarnætur

Götukort Menningarnætur 2015 um aðgengi