Skip to main content
FréttKjaramálMálþing og ráðstefnur

Mikill meirihluti telur brýnt að bæta slæm kjör fatlaðs fólks

By 23. mars 2023mars 27th, 2023No Comments
Fyrirlesari kynnir niðurstöður könnunar á málþingi.
Mikill meirihluti Íslendinga telur kjör öryrkja ýmis frekar eða mjög slæm og segir brýnt að bæta þau. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup vann fyrir ÖBÍ réttindasamtök og kynntar voru á málþingi ÖBÍ réttindasamtaka á Grand hótel sem nú stendur yfir.
Alls sagði 38,1 prósent kjör öryrkja mjög slæm og 43,6 prósent frekar slæm og var lítill munur á afstöðu eftir aldri, kyni, búsetu, menntun eða tekjum.

Svarendur voru beðnir um að taka afstöðu til þess hversu brýnt er að bæta kjör öryrkja. Þeim var gert að gefa svar á kvarðanum 0 til 10 þar sem 0 þýðir alls ekki brýnt en 10 mjög brýnt. Meðaltal svara var 8 sem þýðir að meginþorri landsmanna telur brýnt að bæta kjörin. Alls sagði 33,1 prósent, rétt tæpur þriðjungur, mjög brýnt að bæta kjörin og gaf svarið 10.

Enn fremur voru þátttakendur í könnuninni spurðir hverjar þær telja tekjur öryrkja( þ.e. óskertan örorkulífeyri) vera, hvað þeir telji æskilegt að óskertur örorkulífeyrir sé sem og um hvað myndi duga viðkomandi til framfærslu á mánuði ef viðkomandi missti starfsgetuna á morgun.
Að meðaltali svöruðu þátttakendur því að þeir telji óskertan örorkulífeyri 278.976 kr. eftir skatt, að æskilegar tekjur væru 388.650 og að þeir þyrftu sjálfir 466.259kr.

Mun fleiri leita til umboðsmanns skuldara

Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á vel sóttu málþingi ÖBÍ réttindasamtaka, Satt og logið um öryrkja, á Grand hótel í gær. Þar fóru fyrirlesarar einnig yfir raunverulegar tölur um kjör öryrkja, leiðréttu rangfærslur og fjölluðu um fordóma í garð fatlaðs fólks.
Fulltrúi frá Umboðsmanni skuldara hélt enn fremur erindi á fundinum. Þar kom fram að af 37 prósent þeirra sem þangað leituðu á síðasta ári voru öryrkjar. Horfa má á allt málþingið í spilaranum hér að neðan: