Skip to main content
Frétt

Nýr fræðsluvefur Félagsmálaráðuneytis, námskeið um NPA

By 7. október 2021No Comments

Félagsmálaráðuneytið hefur sett upp nýjan vef sem ber nafnið Fræðslugátt Félagsmálaráðuneytisins. Allir þeir sem starfa við NPA geta þar með tekið grunn- og framhaldsnámskeið um NPA á vefnum. Aðgengi að svona námsefni á vefnum þýðir að notendur, aðstoðarfólk/aðstoðarverkstjórnendur og umsýsluaðilar í NPA, geta setið námskeiðin hvenær og hvar sem þeim hentar.

Aðgengi verður mikið auðveldara og einnig felur þetta í sér mikið hagræði fyrir alla þá sem að koma. Námskeiðin samanstanda af fjölda stuttra námskeiðsþátta sem auðveldar yfirferð til muna. Áhersla er á að allur texti sé einfaldur og skýr og þannig aðgengilegur fyrir alla. Nánari leiðbeiningar um fyrirkomulag er að finna á vefnum sjálfum þegar skráning hefur átt sér stað.

Ráðuneytið tekur fram að námskeiðsvefurinn sé ekki fullmótaður og þiggur því allar góðar ráðleggingar um hvað betur má fara. Í frétt á vef ráðuneytisins er sagt að með tilkomu vefsins sé ráðuneytið að stíga ákveðinn skref inn í framtíðina og tryggja betur að ákvæðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé fullnægt.

Námskeiðin um NPA eru fyrst í röð námskeiða sem verða aðgengileg á námskeiðsvef ráðuneytisins. Næsta námskeið verður um persónulega talsmenn og mun það verða aðgengilegt innan tíðar.

Hér er hlekkur á vefinn.