Skip to main content
FréttTR

Nýr umboðsmaður viðskiptavina hjá TR

By 16. janúar 2023janúar 17th, 2023No Comments

Tryggingastofnun hefur stofnað nýja stöðu umboðsmanns viðskiptavina. Í frétt á síðu stofnunarinnar segir að meginhlutverk umboðsmannsins sé að leiðbeina viðskiptavinum í meðferð mála hjá stofnuninni og aðstoða þau sem telja sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög og reglur.

Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir hefur tekið við þessu nýja starfi. Tilgangurinn er einkum að styrkja tengsl viðskiptavina og TR og að stuðla að umbótum í stjórnsýslu og þjónustu.

„Umboðsmaður:

  • veitir leiðbeiningar varðandi meðferð mála hjá TR
  • leiðbeinir þeim sem telja sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög eða reglur
  • veitir ráðgjöf og aðstoð um endurupptöku og kæruleiðir
  • skal vera hlutlaus þjónustuaðili fyrir viðskiptavini og miðla upplýsingum til þeirra
  • stuðlar að bættum starfsháttum með það að leiðarljósi að jafnræði sé virt í hvívetna í stjórnsýslunni og meðferð mála fari fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti
  • fræðir starfsfólk og leiðbeinir því um góða stjórnsýsluhætti
  • getur tekið upp mál til skoðunar að eigin frumkvæði.

Erindi til umboðsmanns þurfa að vera skrifleg og berast á netfangið umbodsmadur@tr.is. Þar þarf að koma fram lýsing á málavöxtum og hvaða óskir viðkomandi hefur um leiðbeiningar, úrbætur eða breytingar,“ segir á vef TR.