FréttKjaramál

Nýtt hlaðvarp um fátækt komið í loftið – Gildran

Hvernig lítur fátækt út á Íslandi í dag? Hvaða áhrif hefur hún á líf fólks og hvers vegna reynist svo erfitt að brjótast út úr henni?

Þessum spurningum og fleirum er velt upp í Gildrunni, nýju hlaðvarpi EAPN á Íslandi og kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka. Markmið hlaðvarpsins er að varpa ljósi á fátækt á Íslandi, greina rætur hennar og ræða leiðir til úrbóta. Nýr þáttur verður gefinn út í hverjum mánuði.

Í fyrsta þættinum ræðir Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður EAPN á Íslandi, við Kolbein Hólmar Stefánsson, prófessor í Háskóla Íslands og einn helsta sérfræðing landsins á sviði fátæktar. Þau fara yfir birtingarmyndir fátæktar, áhrif hennar á einstaklinga og samfélagið og þær áskoranir sem fólk stendur frammi fyrir þegar tekjur duga ekki til framfærslu.

Fátækt snýst um meira en tölur. Hún hefur áhrif á heilsu, þátttöku, tækifæri og lífsgæði. Með Gildrinni er ætlunin að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu, ólík sjónarhorn og raunhæfar lausnir.

Fyrsti þátturinn, „Gildran – Kolbeinn H. Stefánsson – Fátækt á Íslandi“, er kominn í loftið á Spotify.