Skip to main content
Frétt

Opni háskólinn í HR

By 21. júní 2018No Comments

Við viljum vekja athygli á námslínunni Stjórnendur í þriðja geiranum – frjáls félagasamtök og sjálfseignastofnanir sem er kennd í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík. Námið hentar stjórnendum félaga- og sjálfseignastofnana, bæði nýjum og þeim reynslumeiri.

ÖBÍ er samstarfsaðili að náminu og aðildarfélög þess fá 10% afslátt af verði námsins.

Til að fá þessi sérkjör eru félagsmenn aðildarfélaga beðnir um að senda tölvupóst á verkefnastjóra áður en námslínan hefst.

Kennsla byggist að miklu leyti á hagnýtum verkefnum sem tengjast störfum innan þriðja geirans. Einnig er áhersla lögð á persónulega þróun þátttakenda með það að leiðarljósi að efla og styrkja stjórnendur til að takast á við áskoranir sem oft eru ólíkar þeim sem stjórnendur á almennum vinnumarkaði standa frammi fyrir.

Nánari upplýsingar og skráning.