Skip to main content
Frétt

Opni háskólinn: Þriðji geirinn

By 16. ágúst 2018No Comments

Við vekjum athygli á námslínunni Stjórnendur í þriðja geiranum – frjáls félagasamtök og sjálfseignastofnanir sem er kennd í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík.

Námið hentar stjórnendum félaga- og sjálfseignastofnana, bæði nýjum og þeim reyndari segir í upplýsingum frá skólanum.

Kennsla byggist að miklu leyti á hagnýtum verkefnum sem tengjast störfum innan þriðja geirans. Einnig er áhersla lögð á persónulega þróun þátttakenda með það að leiðarljósi að efla og styrkja stjórnendur til að takast á við áskoranir sem oft eru ólíkar þeim sem stjórnendur á almennum vinnumarkaði standa frammi fyrir.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Háskólans í Reykjavík.
 
 ÖBÍ er samstarfsaðili að náminu og aðildarfélög þess fá 10% afslátt af verði námsins.
Til að fá þessi sérkjör eru félagsmenn aðildarfélaga beðnir um að senda tölvupóst á verkefnastjóra áður en námslínan hefst.