Skip to main content
FréttKjaramálSkoðun

Rétt­læti og jöfnuður

By 2. maí 2023maí 5th, 2023No Comments

Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ, skrifar þessa grein sem birtist fyrst á Vísi:

Hvað er réttlátt samfélag? Hvað felst í jöfnuði? Jöfnuður til þess að afla sér tekna. Jöfnuður til þess að komast leiðar sinnar. Geta notað og nýtt sér heilbrigðisþjónustu. Hvað með þátttöku í samfélaginu að öðru leyti? Geta notið afþreyingar, verslunar og þjónustu. Geta ferðast. Geta lifað mannsæmandi lífi.

Til þess að fatlað fólk geti lifað mannsæmandi lífi þarf samfélagið að vera tilbúið til þess. Alveg eins og samfélagið er tilbúið til þess að hver og einn sem ekki býr við fötlun hefur tækifæri til þess að njóta og nýta sér allt það sem meginþorra almennings stendur til boða. Svo réttlæti og jöfnuður eiga að vera til staðar fyrir fatlað fólk þarf það geta notið sömu samfélagslegra gæða og annað fólk.

Að búa við fötlun hefur takmarkanir í för með sér. Óþægindi og verkir eru eitt. Takmörkuð líkamleg geta er annað. Fötlun er afsprengi samspils milli fólks með skerðingar annars vegar og umhverfis og viðhorfa hinsvegar sem hindra fulla og árangursríka samfélagsþátttöku þess til jafns við aðra. Síðan bætist við að hafa ekki fjárhagslega getu til þess að geta nýtt sér það sem almenningi að stórum hluta stendur til boða.

Stór hluti fatlaðs fólks býr við fátækt. Hefur þar að leiðandi ekki efni á því að greiða fyrir sjúkraþjálfun, læknisþjónustu og þjálfun sem bætt getur líkamlega og andlega líðan.

En það er ekki allt. Mörgum stendur ekki til boða húsnæði sem fötluðu fólki hentar, bæði hvað varðar aðbúnað, aðgengi og kostnað til kaupa, leigu eða jafnvel bara rekstrar húsnæðis.

Stór hluti fatlaðs fólks getur ekki keypt sér húsgögn og húsbúnað eftir þörfum, ekki endurnýjað fatnað eftir óskum og þörfum, ekki farið á sjúkraþjálfun eða til læknis, ekki farið í klippingu.

Allt of stór hluti fatlaðs fólks hefur ekki efni á nærast með sómasamlegum hætti.

Mjög erfitt er fyrir fatlað fólk að fá atvinnu í samræmi við starfsgetu. Þegar það gerist þá lendir fólk gjarnan í miklum erfiðleikum vegna þeirra skerðinga sem innbyggðar hafa verið og gera það illmögulegt fyrir fatlað fólk að bæta kjör sín.

Stærsti einstaki hópurinn sem leitar til umboðsmanns skuldara er fatlað fólk.

Það er kominn tími til þess að tryggja fötluðu fólki réttlát kjör og jöfnuð sem tryggir fötluðu fólki mannsæmandi líf.

Með þeim kjörum sem þorri fatlaðs fólks býr við í dag er verið að brjóta á rétti þessa hóps. Samfélagið þarf að breytast.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Þegar ríki verður aðili samningsins ber það skyldu til „að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar.