Skip to main content
Frétt

Samstaða við Alþingishúsið í dag kl. 15.00

By 14. desember 2015No Comments
Samstaða verður við Alþingi daglega, í um klukkutíma í senn. Krefjumst þess að lífeyrisþegar fái afturvirka hækkun eins og aðrir þjóðfélagsþegnar
Samstaða verður við Alþingi daglega, í um klukkutíma í senn. Fylgist vel með á Facebooksíðu og vef ÖBÍ um tímasetningu samstöðunnar hvern dag, en tímasetning getur breyst frá degi til dags.
 
Krefjumst þess að lífeyrisþegar fái afturvirka hækkun eins og aðrir þjóðfélagsþegnar og að hækkunin verði að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í maí síðastliðnum.Í fjárlagafrumvarpi ársins 2016 er gert ráð fyrir að lífeyrir almannatrygginga hækki frá 1. janúar 2016 um 9,4%. Sú hækkun myndi skila lífeyrisþegum rúmlega 13 þúsund króna hærri ráðstöfunartekjum mánaðarlega að hámarki. Lægstu laun hækkuðu um 31.000 kr. (fyrir skatt) frá 1. maí 2015. 
 

Fjölmennum og sýnum samstöðu.

Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál