Skip to main content
FréttKjaramálSjúkratryggingar

Sjúkratryggingar hækka endurgreiðslu aksturskostnaðar nýrnasjúklinga

By 6. júlí 2022ágúst 31st, 2022No Comments
Í fjölda ára hafa þeir nýrnasjúklingar sem neyðast til að ferðast milli sveitarfélaga til að komast í þá lífsbjargandi meðferð sem blóðskilun er, aðeins fengið 75% af þeim kostnaði sem þeir bera við að aka sjálfir milli staða. Þetta þýddi til að mynda að nýrnasjúklingur sem býr á Akranesi, hefur þurft að greiða úr eigin vasa um 1200 þúsund krónur vegna ferðalaga til og frá Landsspítala. Nýrnafélagið hefur lengi barist fyrir því að Sjúkratryggingar Íslands hækki þetta endurgreiðslu hlutfall.

Nú hefur sú barátta borið árangur. Sjúkratryggingar hafa breytt reglum sínum og gefið út að lengri ferðir, þ.e. ferðir á milli staða ef viðkomandi býr ekki í því sveitarfélagi þar sem þjónustan er veitt, fæst endurgreitt 95% af ferðakostnaði. Þetta þýðir jafnframt að ef viðkomandi sjúklingur getur ekki keyrt sjálfur, og þarf að nýta sér akstursþjónustu, á viðkomandi rétt á 95% endurgreiðslu þess kostnaðar. Þetta á aðeins við þá sem eru í lífsbjargandi meðferð.

Það er Nýrnafélaginu mikið ánægjuefni að þessi breyting hafi orðið, enda mjög mikilvægt skref fyrir félagsmenn. Þó er rétt að árétta þá ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. maí síðastliðinn og hljóðar svo:

Skorað er á Samband íslenskra sveitarfélaga að þau komi sér saman um akstursþjónustu milli sveitarfélaga fyrir fatlað fólk og langveikra sem ekki geta nýtt sér almenningssamgöngur. Aðeins með því er hægt að stuðla að jafnræði óháð búsetu.

Nýrnafélagið er eitt aðildarfélaga Öryrkjabandalags Íslands.