Skip to main content
Frétt

RSK framtal: úttekt séreignasparnaðar vegna Covid

By 28. febrúar 2022No Comments

Í ár er sérstaklega mikilvægt að þeir sem nýttu sér úrræði stjórnvalda vegna Covid, og tóku út séreignasparnað, verði vakandi fyrir því að úttektin sé rétt færð á framtal þeirra.  

Vakin er athygli á því að hér er um forskráðar upplýsingar á framtali þínu. Þinn lífeyrissjóður skráir úttektina fyrir þig og á hún að vera skráð í reit 143 á framtali þínu.

Á síðasta ári voru dæmi þess að lífeyrissjóðir skráðu úttektina í annan reit (140) sem þar með hafði þau áhrif að teljast til skattskyldra tekna.

Í uppgjöri Tryggingastofnunar (TR) á tekjutengdum greiðslum ársins 2020 komu upp tæplega 300 tilfelli þar sem lífeyrisþegar urðu fyrir skerðingu, í bótaflokknum sérstök uppbót til framfærslu, vegna úttektar séreignarsparnaðar sem var ranglega forskráð á skattframtal.

Opnað verður fyrir framtalsskil einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, 1. mars. Lokaskiladagur er 14. mars. Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, skattur.is

Skatturinn býður upp á aðstoð við útfyllingu framtalsins. Símanúmer fyrir framtalssaðstoð er 442 1414. Framtalsleiðbeiningar Skattsins er að finna hér