Skip to main content
Frétt

Stjórnvöld hafa reist háa múra, okkar er að brjóta þá niður!

By 1. maí 2021No Comments
Við búum að sterkri verkalýðsforystu, þar sem formenn margra félaga eru áberandi í kröfu sinni um afkomuöryggi sinna félagsmanna og hika ekki við að benda á þann ójöfnuð sem við búum við í dag. Þar sem auðugir hafa óhófleg völd á meðan hluti vinnuaflsins berst við að lifa á lágmarkslaunum, atvinnulausir súpa af skál fátæktar og fólk sem fallið hefur af vinnumarkaði vegna veikinda eða slysa, er skammtað svo naumt að það tórir en lifir engu lífi.

Þrepaskipting misréttis kristallast í þessari mynd. Stjórnvöldum eru mislagðar hendur þegar kemur að því að verja þá sem minnst hafa. Einum  ráðherranna dettur ekkert betra í hug en að telja þjóðinni trú um að öryrkjar og fatlað fólk sé efnahagsleg ógn við þjóðarbúið og lyftir þar með fordómum gagnvart langveiku og fötluðu fólki.

Aldraðir fá sömu útreið, þau sem búa á hjúkrunarheimilum, eru of dýr í rekstri, of dýr fyrir samfélagið sem þau sjálf skópu.

Forysta ÖBÍ hefur í áratugi bent á misréttið sem stjórnvöld beita öryrkja og fötluðu fólki. Nýjast bera að nefna að nú fær fatlað fólk ekki örorkumat, það á nefnilega að fækka öryrkjum.

Almannatryggingakerfið sem á að grípa fólk sem ekkert annað hefur, stendur ekki lengur undir því hlutverki heldur skolar fólki miskunnarlaust út úr kerfinu, í allsleysið.

ÖBÍ hefur barist fyrir því að fatlað fólk hafi aðgang að samfélaginu, að fólk sem orðið hefur fyrir slysum, veikindum eða fæðst fatlað, sé viðurkennt sem hluti af fjölbreytileika samfélagsins og hafi jöfn tækifæri til þátttöku í því.

Til þess að það geti gerst verður fólk að hafa aðgang að efnahagslegu, félagslegu og menningarlegu réttlæti!

Verkefni stjórnvalda er að skapa fötluðu fólki tækifæri til þátttöku í samfélaginu m.a. þátttöku á vinnumarkaði, hafi það getu til þess.

Kominn er tími til að þeir múrar sem reistir hafa verið af stjórnvöldum milli fatlaðs fólks og þátttöku þess í samfélaginu verði brotnir niður, þar eru skerðingar efstar á blaði. Íslendingar eiga heimsmet í að beita fatlað fólk óhóflegum skerðingum og skattlagningum, þar er ekki gætt meðalhófs. Engin önnur þjóð beitir þennan samfélagshóp jafn grimmilegum aðgerðum. Afraksturinn er sá að hluti fatlaðs fólks býr við ævivarandi skort, fátækt sem eltir það inn í ellina, kúgað, niðurbrotið og vonlaust.

ÖBÍ hefur mætt skilningi verkalýðsforystunnar, enda bent á að stærstur hluti þess fólks sem kemur nýr inn á örorku á hverju ári hefur verið á vinnumarkaði jafnvel í áratugi en missir öll réttindi við það að fatlast eða veikjast. Þar eru t.d. konur yfir fimmtugt stór hópur og karlar um sextugt, verkamenn, húsasmiðir og aðrir sem stundað hafa líkamlega erfiða vinnu. Þetta er kannski ekki hópurinn sem á afturkvæmt á vinnumarkað en þetta er hópurinn sem fær skilaboðin um að þau séu baggi á samfélaginu, þegar þau fá framfærslu sína sem ekki nær 230.000 kr. inn á reikningin um hver mánaðarmót. Þakklætið fyrir áratuga starf í þágu atvinnulífs og þjóðar!

„Það er nóg til“ er slagorð dagsins og það er satt, það er nóg til! Örorka á ekki að vera ávísun á fátækt, fötlun er ekki skömm þess sem hana ber! Verið stolt og krefjist réttlætis.

Ykkar er samfélagið eins og þeirra sem sitja við allsnægtarborðið!

Til hamingju með daginn!