
Íslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Með fullgildingunni fær fatlað fólk á Íslandi heimild til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
ÖBÍ réttindasamtök fagna þessum mikilvæga áfanga og þakka þingheimi fyrir að hafa stigið þetta skref.
„Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi og mikilvæg réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi. Með fullgildingunni er stigið skref í átt að sterkari réttarstöðu og aukinni ábyrgð stjórnvalda þegar kemur að réttindum fatlaðs fólks. Það skiptir máli að fólk hafi raunhæfar leiðir til að leita réttar síns,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka.
Í valfrjálsu bókuninni er kveðið á um að fatlað fólk geti, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, leitað til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna ef það telur að brotið hafi verið á réttindum þess samkvæmt samningnum. Áður þarf þó að jafnaði að hafa fullreynt þau úrræði sem eru í boði innanlands, til dæmis með því að bera mál undir dómstóla.
Ef kvörtun uppfyllir skilyrði bókunarinnar tekur nefndin málið til umfjöllunar og gefur út ráðgefandi álit. Í kjölfarið þurfa stjórnvöld að upplýsa nefndina um hvernig brugðist verði við álitinu.

